|
25.11.2010
Nú eru komnir nokkrir nýir söluhestar á síðuna, setjum einnig inn myndbönd af þeim á næstunni.
Please take a look at our new sale horses!
|
|
1.8.2010
Trú var sýnd á Hellu nú í vikunni og stóð sig frábærlega, hún hlaut 7,84 fyrir sköpulag 8,66 fyrir hæfileika og 8,33 í aðaleinkun. Trú er 3. hæst dæmda 6 vetra hryssan í ár og næst hæst fyrir hæfileika, við eigum þessa frábæru hryssu með vini okkar Reyni Erni Pálmasyni.
|
|
11.4.2010
Hér er ein spennandi hryssa í þjálfun, og smelltum við nokkrum myndum af henni á dögunum!
Freydís er 1. verðlauna hryssa sem við eigum með Reyni Erni Pálmasyni, þetta er stór og glæsileg alhliða hryssa sem hlaut 1. verðlaun (sköpulag: 8,26 kostir: 7,95 aðal: 8,07)
|
|
8.4.2010
Það eru nokkur ung hross í tamningu hjá okkur úr eigin ræktun og fer þeim heldur fjölgandi með árunum, tókum nokkrar myndir af hluta þeirra í veðurblíðunni fyrir nokkrum dögum. Knapi á þessum hrossum er Malin Jansson frá Svíþjóð sem hefur starfað hjá okkur í tæp þrjú ár.
|
|
7.4.2010
Sindri er geldingur á fimmta vetur taminn í vetur og fer vel af stað, viljugur og rúmur . Hann er sonur Esju frá Mosfellsbæ og Kjarna frá Þjóðólfshaga. Það er Leifur Kr. Jóhannesson sem á og ræktaði þennan.
|
|
7.4.2010
Þetta er geldingur á sjötta vetur undan Einingu frá Mosfellsbæ og Andvara frá Ey, efnilegur hestur sem sonur okkar Leifur Ingi á.
Að sjálfsögðu er hesturinn í Snæfells og Man Utd litunum!!!!!!
|
|
2.4.2010
Framundan er páskahelgin þá er margt um að vera hjá hestamönnum með tilheyrandi hestasýningum og keppnum í reiðhöllum og skautahöllum. Á Sauðárkróki verður haldið heilmikið KVENNATÖLT í fyrsta skipti í reiðhöllinni Svaðastöðum sem við styrkjum ekki annað hægt eftir að hafa styrkt KARLATÖLT í Herði. Var hálf hræddur
|